Jólaspilavist Neista og jólaball
feykir.is
Skagafjörður
27.12.2013
kl. 17.37
Hin árlega jólaspilavist Neista á Hofsósi verður haldin í kvöld 27. desember 2013 klukkan 21:00 á Hlíðarhúsinu. Hefðbundin dagskrá, kaffihlaðborð og glæsilegir vinningar að vanda. Á morgun verður svo hið árlega jólaball haldið klukkan 14:00 í félagsheimilinu Höfðaborg.
Allir velkomnir á báða viðburðina.
