Kanna bótagrundvöll vegna bensínleka á Hofsósi

Í desember árið 2019 neyddist fimm manna fjölskylda á Hofsósi að yfirgefa húsnæði sitt vegna mikillar bensínlyktar sem þau fundu í húsnæðinu. Nágrannar þeirra í næstu húsum könnuðust við sömu lykt í sínum húsum. Sökudólgurinn virtist vera eldsneytistankur sem staðsettur var handan götunnar við bensíndælur N1 á Hofsósi. Sá tankur stóðst ekki lekapróf og óvíst hversu lengi hann hafði lekið.

Á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar 19. maí síðastliðinn var ákveðið að kanna bótagrundvöll og móta kröfugerð gagnvart þeim sem bera ábyrgð á tjóninu. Í bókun byggðaráðsins kemur eftirfarandi fram:
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að kanna, með aðstoð lögmanns sveitarfélagsins, bótagrundvöll og móta kröfugerð gagnvart þeim sem ábyrgð bera á mengunartjóninu á Hofsósi. Jafnframt að leita allra leiða til þess að knýja fram upplýsingar, m.a. frá N1 og Umhverfisstofnun um magn og upphaf mengunar og enn fremur að leita viðræðna við N1 um fullnægjandi kortlagningu mengunar og um það hvernig heppilegast er að standa að upprætingu hennar.
Byggðarráð lýsir yfir furðu með að Umhverfisstofnun hefur ekki formlega svarað erindi sveitarfélagsins frá 17.03. 2021, þrátt fyrir loforð þar um. Er sveitarstjóra falið að ganga eftir formlegu svari við erindinu.“

/SMH

Tengdar fréttir:
Líklegast að mengun komi frá lekum eldsneytistanki N1 á Hofsósi
Olíutankur á Hofsósi stóðst ekki lekapróf
Umfangmengunar vegna bensínleka skoðað á Hofsósi
Starfsleyfi bensínstöðvarinnar á Hofsósi rann út 1. janúar sl.
Jarðvegssýni tekin á Hofsósi í síðustu viku
Gagnrýna Umhverfisstofnun fyrir seinagang í bensínmengunarmálinu
Hvar liggur ábyrgðin?

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir