Karlakórinn Lóuþrælar í Dalabúð

Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra syngja í Dalabúð Búðardal, á morgun miðvikudaginn 8. apríl kl. 21:00. Dagskráin fjölbreytt að vanda. „Komið og eigið með okkur ánægjulega stund,“ segir í fréttatilkynningu frá kórnum.

Söngstjóri er Guðmundur St. Sigurðsson, undirleikari er Elinborg Sigurgeirsdóttir og einsöngvari er Guðmundur Þorbergsson.

Aðgangseyrir kr. 3.000,- (enginn posi á staðnum) frítt fyrir 14 ára og yngri.

Fleiri fréttir