Kínverjar fjármagna álver á Hafurstöðum
Kínverskt fyrirtæki ætlar að reisa álver á Hafurstöðum í Skagabyggð en viljayfirlýsing um fjármögnun verkefnisins var undirrituð í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík í gær. „Þetta er mikilvægur áfangi í undirbúningsferlinu. Klappir og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra fagna því að jafn öflugur og traustur aðili og NFC skuldbindi sig til þátttöku í þróun verkefnisins. Framboð á nauðsynlegri orku mun ráða því hvenær hægt verður að hefja rekstur álvers að Hafursstöðum,“ segir Ingvar U. Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa Development.
Áætlað er að 120.000 tonna álverið rísi á fyrirhuguðu iðnaðarsvæði við Hafursstaði, rétt sunnan við Skagaströnd. Áætlanir gera ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álverinu og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma.
Í fréttatilkynningu segir að Klappir og China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC) vinni um þessar mundir í sameiningu að hagkvæmniathugun vegna byggingar og reksturs fyrirhugaðs álvers. Heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður rúmir 100 milljarðar króna (780 milljónir Bandaríkjadala).
Frá Hafurstöðum í Skagabyggð. Ljósm./KSE
Í viljayfirlýsingunni kemur fram að kínverska samstarfsaðilanum sé falin svokölluð „alframkvæmd“ (e. turnkey) verkefnisins. Samkvæmt henni ábyrgist NFC fjármögnun a.m.k. 70% kostnaðar við framkvæmdina og uppbyggingu innviða í gegnum kínverska eða aðra banka, auk þess að ábyrgjast byggingu allra mannvirkja sem og rekstur álversins á meðan uppkeyrslu þess stendur. Einnig er einnig á um samvinnu Klappa og NFC um gerð samninga við þriðja aðila um forsölu framleiðsluafurða (e. offtake) sem og um samstarf um gerð samninga við seljendur hráefnis.
Viljayfirlýsingin sem var undirrituð í gær byggir m.a. á samstarfssamningi á milli sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra og Klappa Development, en þar hafa Sveitarfélagið Skagafjörður og Húnaþing vestra ákveðið að starfa með Blönduósbæ, Húnavatnshreppi, Sveitarfélaginu Skagaströnd og Skagabyggð, sem áður höfðu undirritað samstarfssamning við Klappir um uppbyggingu og rekstur álvers að Hafursstöðum.
Ekki tekist að láta Blönduvirkjun skapa störf á svæðinu
Umræddar álversframkvæmdir komu til tals á íbúafundi sem haldinn var á Blönduósi sl. mánudag þegar atvinnumál í sýslunni voru til umæðu og Greinargerð um atvinnuuppbyggingu í Austur-Húnavatnssýslu til kynningar. Ingvar Skúlason framkvæmdastjóri Klappa var staddur á fundinum og kynnti hugmyndirnar um álverið. Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri á Blönduósi, og jafnframt formaður verkefnanefndar, kynnti innihald skýrslunnar. Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður Þróunarsviðs Byggðastofnunar fór yfir stöðu byggðaþróunar í A-Hún.
Í Feyki sem kom út í dag er rætt við Valgarð Hilmarsson, forseta bæjarstjórnar í Blönduósbæ um fundinn en þar segir hann góðar umræður hafa skapast.
„Umræðan snýst um það að Blönduvirkjun er á svæðinu og það hefur ekki tekist að láta hana búa til störf á svæðinu nema á uppbyggingartímanum en nú er kominn tími til að breyta því,“ segir Valgarður. Valgarður segir jafnframt að með þeim 150 MW sem Blönduvirkjun er í dag auk þeirra rennslisvirkjana sem hægt væri að fara í, auk vindorkustöðva, væri hægt að framleiða rafmagn sem að dygði í fyrsta áfanga álversins.
„Þá er ekkert óeðlilegt að það þurfi að virkja annars staðar til að fylla í það skarð sem Blönduvirkjun skilur eftir,“ segir Valgarður jafnframt og minnti á að þáverandi forsætisráðherra hefði á sínum tíma skrifað undir viljayfirlýsingu þess efnis að orkan úr Blöndu nýttist í heimabyggð.
Þarf annað hvort að nýta orkuna úr Blöndu eða kraftaverk
Þá kom m.a. fram í máli Snorra Björns að til að snúa núverandi íbúaþróun við í sýslunni þyrfti annað hvort að nýta orkuna úr Blöndu eða að það þyrfti kraftaverk.
„Það voru allir sammála um mikilvægi þess að takast á við vandamálið og tekið var undir það sjónarmið Snorra Björns að það væri annað hvort eða. Það var lögð mikil áhersla á það að jafnvel þó menn séu að tala um álver núna, að leggja jafnframt áherslu á allt annað sem hugsanlega gæti komið að gagni. Við verðum að halda áfram að styrkja þessa inniviði eins og mögulegt er,“ segir Valgarður Hilmarsson, forseti bæjarstjórnar á Blönduósi í Feyki.