Kiwanisklúbbar norðanlands sameinast um gjöf til barnadeildar sjúkrahúss Akureyrar

Óðinssvæði Kiwanis færði fyrir helgi barnadeild sjúkrahúss Akureyrar innihitadýnu og vöggu að gjöf en gamla hitadýnan var löngu ónýt svo þetta var kærkomin gjöf. Á Facebooksíðu sjúkrahússins á Akureyri kemur fram að dýnan sé notuð fyrir fyrirbura og léttbura sem þurfa aðstoð við að halda líkamshita og geti verið inni á stofu með foreldrum sínum og þurfi þá ekki að vera í hitakassa.
„Það er virkilega mannbætandi og gjöfult að starfa í félagsstarfi sem gefur ekki aðeins af sér skemmtilegan félagsskap og hláturmilda fundi, heldur einnig stuðning, hjálpsemi og kærleik í samfélagið. Kiwanis hreyfingin starfar eftir kjörorðunum „hjálpum börnum heims“ og kiwanisklúbbar Óðinssvæði sameinuðust núna á vordögum í að styrkja barnadeild sjúkrahús Akureyrar,“ segir Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, Kiwanisklúbbnum Freyju sem er einn af átta klúbbum Óðinssvæðis en aðrir eru Drangey á Sauðárkróki, Skjálfandi Húsavík, Kaldbakur Akureyri, Herðubreið Mývatnssveit, Grímur Grímsey, Askja Vopnafirði og Skjöldur í Fjallabyggð.