Konni á úrtaksæfingu hjá U19 karla

Konráð Freyr Sigurðsson leikmaður fyrstudeildarliðs Tindastóls í fótbolta hefur verið boðaður á úrtaksæfingar vegna U19 liðs karla um helgina annað skiptið í vetur. Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöll og eru undir stjórn Kristins Rúnars Jónssonar þjálfara U19 landsliðs Íslands. Konni verður þar meðal 24 annarra knattspyrnumanna sem teljast best geta komið Íslandi að gagni á fótboltavellinum.

Konráð Freyr lék þrettán leiki með Tindastól síðasta tímabil og stóð sig með stakri prýði en árið 2012 lék hann með liði Drangeyjar sem gerði það gott í 3. deildinni. Fyrir þá sem ekki koma drengnum fyrir sig er hann sonur hins margreynda knattspyrnukappa, þjálfara og fyrrum landsliðsmanns í fótbolta Sigurðar Halldórssonar eða Sigga Donna og Lovísu Jónsdóttur fótaaðgerðafræðings á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir