Kór Glaumbæjarprestakalls með geisladisk
Nú á dögunum kom út nýr geisladiskur sem ber nafnið Kertaljós með Kór Glaumbæjarprestakalls sem hefur að geyma hugljúfa jóla og aðventutónlist. Auk kórsins sem telur á fjórða tug meðlima fékk hann aðstoð frá stúlkum úr Varmahlíðarskóla sem syngja með í nokkrum lögum.
Flest eru þetta kunnugleg lög að upphafslaginu "Það kertaljós" undanskildu en það er eftir stjórnandann Stefán Gíslason við texta Sigurðar Björnssonar frá Framnesi. Um undirleik sáu Berglind Stefánsdóttir flautuleikari og Eyþór Ingi Jónsson organisti Akureyrarkirkju. Upptökur fóru fram í Blönduóskirkju undir styrkri stjórn Skagfirðingsins Hilmars Sverrissonar. Áður hefur kórinn gefið út diskinn Mín helgistund. Nýi diskurinn er fáanlegur í verslunum auk þess sem hægt er að nálgast hann hjá kórmeðlimum.
/Fréttatilkynning