Króksblótið verður 8. febrúar

Fundur var haldinn í þorrablótsnefnd Króksblótsins í gærkvöldi og var dagsetning ákveðin fyrir Króksblót 2013. Verður það haldið í íþróttahúsinu laugardaginn 8. febrúar sem er þriðja helgi í þorra en hann hefst föstudaginn 24. janúar.

Samkvæmt heimildum Feykis er verið að vinna að skemmtidagskránni en ekki fékkst upplýst nú hver muni halda uppi stemningu á ballinu. Það er árgangur 1961 sem sér um blótið 2014.

Fleiri fréttir