Kynningarfundur um viðbyggingu við Grunnskóla Húnaþings vestra
Opinn kynningarfundur vegna viðbyggingar við Grunnskóla Húnaþings vestra verður haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga miðvikudaginn 10. apríl kl. 17:00 – 18:00. Á fundinum munu VA arkitektar kynna grunnteikningar og innra skipulag viðbyggingar sem hýsa mun grunnskóla og tónlistarskóla í Húnaþingi vestra og Arnar Birgir Ólafsson landslandsarkitekt kynnir lóðaskipulag skólasvæðisins, frá leikskóla að íþróttamiðstöð. Að því loknu verða fyrirspurnir og umræður.
Að kynningu lokinni liggja teikningar frammi á skrifstofu Húnaþings vestra til 25. apríl og gefst íbúum tækifæri til að koma með skriflegar ábendingar fram að þeim tíma. Þeim verður hægt að skila rafrænt á heimasíðu Húnaþings vestra.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.