Leikfélag UMF Grettis áformar að taka upp þráðinn
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
07.11.2014
kl. 09.29
Leikfélag Ungmennafélagsins Grettis hefur auglýst eftir áhugasömu fólki á vef Norðanáttar. Í tilkynningunni segir að það vanti fólk bæði í leik og störf, til að taka þátt í uppsetningu leikrits um komandi páska.
Leikfélagið setti síðast upp leikritið Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan árið 2011. Þeir sem hafa áhuga, hvort sem er á því að leika, farða, smíða leikmynd eða annað geta sent póst á netfangið umf.grettir@gmail.com fyrir 10. nóvember n.k.