Leikur Hamars og Tindastóls í beinni

Íþróttafélag Hamars hefur nú fest kaup á búnaði til útsendinga á kappleikjum og viðburðum hjá deildum félagsins og var tilraunaútsending frá leik Hamars og Hauka í Dominos deild kvenna fyrir skömmu og gekk vel. Þetta kemur sér einkar vel fyrir Skagfirðinga þar sem strákarnir í meistaraflokki Tindastóls heimsækja deildarnauta sína í Hamri annað kvöld.

Tindastóll er í miklum ham en liðið hefur unnið alla sína leiki og trónir á toppi 1. deildar ásamt Þórsurum frá Akureyri sem einnig eru taplausir. Ekki hefur gengið eins vel hjá Hamri sem einungis hefur unnið einn leik af fjórum.

Fleiri fréttir