Leyfi til nýtingar jarðhita samþykkt
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
22.05.2014
kl. 15.53
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra í síðustu viku var lagt fram bréf til Orkustofnunar dagsett 7. maí sl. þar sem samþykkt var leyfi til nýtingar jarðhita til handa sveitarfélaginu í landi Reykja í Hrútafirði, fyrir stækkun hitaveitu við Hrútafjörð.
Á fundinum var framkvæmda-og umhverfissviði sveitarfélagsins falið að gera drög að samningum við landeigendur og afla tilskilinna leyfa og leggja fyrir byggðarráð.
Var erindið síðan samþykkt á fundi sveitarstjórnar sl. fimmtudag, þar sem sveitarstjórn fagnaði útgefnu leyfi.