Ljósnetið á Hvammstanga

Í síðustu viku hófst fyrirtækið Míla við að setja upp búnað fyrir Ljósveitu í símstöðinni á Hvammstanga. Með því að tengjast Ljósveitu Mílu fá íbúar möguleika á allt að 50Mb/s til heimila og 25Mb/s frá heimilum.

Aukinn gagnaflutningshraði Ljósveitu Mílu býður upp á móttöku á allt að fimm háskerpusjónvarpsstöðvum. Hraði og öryggi tengingarinnar skapar kjöraðstæður til fjarvinnu, afþreyingar og samskipta.

Til að flýta fyrir lagningu á landsbyggðinni er í fyrsta áfanga settur upp búnaður fyrir Ljósveitu í símstöðvar og geta íbúar sem búa í innan við 1000 metra línulengd frá símstöðinni tengst fljótt og vel. Hafa íbúar möguleika á að nálgast háhraðaþjónustu um Ljósveitu Mílu hjá sínu fjarskiptafyrirtæki.

Fleiri fréttir