Lögreglan með viðbúnað á Sauðárkróki
feykir.is
Skagafjörður
04.12.2013
kl. 15.38
Umsátursástand ríkir nú við Hásæti á Sauðárkróki en þar hefur lögreglan staðsett sig í nágrenninu í minnst fjórum lögreglubílum auk eins sem er ómerktur. Sjúkrabíll er einnig tiltækur í seilingarfjarlægð. Ekki fæst uppgefið hjá lögreglu hvað er í gangi en ljóst er að þarna hefur skapast alvarlegt ástand þar sem íbúar hafa verið beðnir um að víkja af svæðinu eigi þeir þess kost.