Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar á föstudag

Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður tölt og hefst kl. 17:30 föstudaginn 5. apríl. Keppt verður í 1., 2. og unglingaflokki í tölti T1 (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt) og í 3. flokki í tölti T7. Skráning er til miðnættis í kvöld, þriðjudagsins 2. apríl, á netfangið kolbruni@simnet.is.  

Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts kemur fram að það verði tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er; hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt í tölti T1. „Í ár ætlum við að láta snúa við, svo knapar þurfa að ákveða upp á hvora höndina þeir vilja byrja,“ segir á heimasíðunni.

Við skráningu þarf að koma fram kt. knapa, IS númer hests, fyrir hvaða lið knapi keppir og upp á hvora höndina skal riðið. Í mótaröðinni mega knapar ekki keppa á sama hesti í sömu grein, t.d. má unglingur ekki keppa í tölti á einu móti og fullorðinn á öðru móti í mótaröðinni, sama á við um tölt T7 o.s.frv.

Skráningargjaldið er 2.000 fyrir fullorðna og 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.

Fleiri fréttir