Lóuþrælar halda söngskemmtun í Seltjarnarneskirkju

Karlakórinn Lóuþrælar úr Húnaþingi vestra ætlar að halda söngskemmtun í Seltjarnarneskirkju sunnudaginn 14. apríl næstkomandi klukkan 17:00. Sönginn nefna þeir „Vorvindar“ og er þar að finna íslensk og erlend lög, sem flutt eru við undirleik hljómsveitar, samkvæmt heimasíðu kórsins.  

„Munið! Ánægja okkar og ykkar verður því meiri sem fleiri mæta. Hittumst hress og kát,“ segir loks á heimasíðunni.

Fleiri fréttir