Lóuþrælar syngja inn vorið

Karlakórinn Lóuþrælar, heldur sína árlegu vortónleika í Félagsheimilinu Hvammstanga, sunnudaginn 5. maí, kl. 17:00. Stjórnandi kórsins er Ólafur Rúnarsson, meðleikari Elinborg Sigurgeirsdóttir og einsöngvari er Hallveig Rúnarsdóttir sópran.

„Einsöngvari á tónleikunum er ein fremsta söngkona okkar Íslendinga, Hallveig Rúnarsdóttir sópran sem á liðnum tónlistarverðlaunum var valin söngkona ársins í klassískum söng. Dagskráin er fjölbreytt, flutt verða verk allt frá perlum óperubókmenntanna yfir í hugljúfa gimsteina íslenskra sönglaga,“ segir í tilkynningu frá kórnum.

Fleiri fréttir