Maríudagar á Hvoli

Síðustu tvö ár hefur fjölskylda Maríu Hjaltadóttur, heiðrað minningu hennar með listsýningu sem nefnist ,,Maríudagar”. Eigendur Hvols höfðu fyrir nokkrum árum tekið vel til hendinni við að tæma og lagfæra skemmu og gamlan bragga sem var notaður sem hlaða og voru orðin að fyrirtaks salarkynnum til sýninga og samkomuhalds ýmiss konar.

Helgina 13. og 14. júlí 2013 ætlar fjölskyldan enn að efna til ,,Maríudaga” með sýningu á verkum Maríu og systkina hennar sem öll voru mjög listhneigð. Sýningin verður haldin á Hvoli í Vesturhópi og er opin frá kl 13 til 19 báða dagana.

Systkinin voru fjögur og er Jóhanna þeirra elst fædd 1919, kennari, hún er mikil hannyrðakona og er enn að 93 ára gömul.

Gunnar f. 1920 – d. 1999, gullsmiður, útvarpsvirki og listmálari.

María f. 1924 – d. 1992, listakona og húsfreyja á Hvoli.

Friðrik f. 1929 – d. 1999, prentari og fékkst við þrykkimyndir og skúlptúra.

Gestum er boðið að þiggja veitingar á meðan sýningu stendur.

Margt manna var við guðsþjónustu hjá sr. Magnúsi Magnússyni á Maríudögum í fyrra, sem einnig er hestamaður góður og að athöfn lokinni var riðið , ekið og gengið aftur að Hvoli þar sem fjölskyldan og sóknarnefnd Breiðabólstaðarkirkju buðu upp á messukaffi, heimabakað góðgæti margs konar ásamt kaffi og kakói.

Börn þeirra hjóna eru flest handverks-og listamenn og má nefna :Oddnýju sem er listaútskurðarkona á tré og á afar falleg verk eins og hillu með útskorinni brík, fugla og gestabækur, Kristínu er málar myndir og sker út úr tré ásamt ýmsu öðru, Grétu sem á veggmyndir úr leir, en hún er þekkt leirlistakona og rekur verkstæði af miklum dugnaði og listfengi. Hin eru einnig hagleiksfólk, en alls komust átta börn þeirra upp. Barnabörn þeirra Maríu og Jósefs áttu þarna falleg verk, s.s. teikningar(m.a. af Maríu í upphlut) töskur úr hjólbörðum, nytjahluti með listrænu yfirbragði úr lopa  að ógleymdri ljóðabók en lengi mætti telja. Það má því segja að það hafi ekki einungis verið María sem var listakona, heldur virðist sem flestir afkomendanna hafi fengið þetta listfengi í arf.

Fleiri fréttir