Markaður og kaffisala

Markaður með jólaívafi og kaffisala verða sunnudaginn 17. nóvember í Ljósheimum. Söluaðilar með fjölbreyttan varning verða á staðnum. Notað og nýtt, gjafavara, handverk, jólavörur, brauð, kökur og sultur.

Bogi og Reynir verða með söluborð til styrktar skólasystur þeirra Selmu Björk.

Kaffihlaðborð á kr. 1000 og frítt fyrir 12 ára og yngri. Upplagt að taka sunnudagsbíltúr í Ljósheima.

Fleiri fréttir