Meistaramót GSS 2014
Meistaramót GSS fór fram dagana 9.-12. júlí, alls tóku 28 þátt í mótinu en keppt var í sex flokkum. Keppt var í höggleik án forgjafar en einnig fór fram punktakeppni í einum opnum flokki og veitt voru fern aukaverðlaun. Samkvæmt vef GSS var keppni jöfn og spennandi í meistaraflokkunum og í 1. flokki karla réðust úrslit á 2. holu í bráðabana og hjá konunum í háforgjafaflokki réðust úrslit einnig í bráðabana. Öllum keppendum eru færðar þakkir fyrir prúðmannlega framkomu og góða keppni.
Úrslit í höggleik án forgjafar:
Meistaraflokkur karla:
1. Arnar Geir Hjartarson – 312 högg
2. Jóhann Örn Bjarkason – 314 högg
3. Elvar Ingi Hjartarson – 322 högg
Meistaraflokkur kvenna.
1. Árný Lilja Árnadóttir – 330 högg
2. Aldís Ósk Unnarsdóttir – 332 högg
3. Ragnheiður Matthíasdóttir – 360 högg
1. flokkur karla
1. Magnús Gunnar Gunnarsson – 344 högg
2. Rafn Ingi Rafnsson – 344 högg
3. Hjörtur Geirmundsson – 383 högg
2. flokkur karla
1. Guðmundur Ragnarsson – 347 högg
2. Einar Einarsson – 351 högg
3. Hákon Ingi Rafnsson – 354 högg
4. flokkur karla
1. Friðjón Bjarnason – 398 högg
2. Einar Ágúst Gíslason – 438 högg
Háforgjafaflokkur kvenna (leikið 3 x 9 holur)
1. Helga Dóra Lúðvíksdóttir – 192 högg
2. Herdís Sæmundardóttir – 192 högg
3. Nína Þóra Rafnsdóttir – 196 högg
Punktakeppni með forgjöf:
1. Friðjón Bjarnason – 151 punktur
2. Aldís Ósk Unnarsdóttir – 148 punktar
3. Hákon Ingi Rafnsson – 148 punktar
Aukaverðlaun.
1. dagur - Ásgeir Björgvin Einarsson - 12 cm frá flaggi á par 3 braut 6/15
2. dagur - Ragnheiður Matthíasdóttir - 45 cm frá miðlínu á 5/14
3. dagur - Árný Lilja Árnadóttir – 2,01 m frá flaggi í öðru höggi á 9/18
4.dagur - Árný Lilja Árnadóttir lengsta upphafshögg á 8/17
Hluti verðlaunahafa í Meistaramóti GSS 2014. Ljósm./Hjörtur Geirmundsson.
Myndir af mótinu er að finna inni á Facebook síðu GSS, "Golfmyndir GSS"