Menningarlíf í Grunnskóla Húnaþings vestra
Það er blómlegt menningarlífið í Grunnskóla Húnaþing vestra, en þar eru bæði söngvakeppni og leiksýning framundan. Söngvakeppnin fer fram í félagsheimilinu á Hvammstanga kl. 20:30 kvöld, en stefnt er á sýningu á leikritinu Perfect í mars nk.
Það er nemendur í leiklista, hár og förðunarvali skólans sem eru að setja upp leikritið og hafa þeir verið að leita eftir ýmsum munum og aðstoð frá íbúum í sveitarfélaginu. Það þarf alltaf margar hendur þegar leikrit er sett upp og því eru krakkarnir að leita að aðstoðarfólki við t.a.m. smíði á leikmynd, uppsetningu og stjórnun ljósa, hljóðvinnslu og ýmislegt annað sem til fellur.
Leiklistarval Grunnskóla Húnaþings vestra er svo komin með Facebook-síðu þar sem hægt er að fylgjast með framgangi mála og fréttum.
Frá þessu er sagt á vef Grunnskóla Húnaþings vestra.