Miðasala á Jólastjörnur Geirmundar hefst í dag

Miðasala á tónleikana „Jólastjörnur Geirmundar Valtýssonar,“ sem verða haldnir í Miðgarði sunnudaginn 8. desember kl 18 og 20:30 hefst í dag. Jólaplata hans er jafnframt á leið í verslanir og verður komin eftir helgi.

Jólastjörnurnar sem fram koma á tónleikunum með Geirmundi eru Ari Jóns, Helga Möller, Hreindís Ylfa, Páll Rós, Sigga Beinteins, Sigfús Pétursson, afastelpurnar Anna Karen og Valdís og karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Stórhljómsveit Vilhjálms Guðjónssonar leikur undir. Kynnir verður Þorgeir Ástvaldsson.

Forsala aðgöngumiða hefst í dag í KS Varmahlíð, Tískuhúsinu og N1 á Sauðárkróki. Miðaverð er aðeins kr. 3.500.

Fleiri fréttir