Mikil fjölgun ferðamanna í Húnaþingi vestra
Ferðamönnum hefur fjölgað um 80 prósent milli ára í Húnaþingi vestra, en aukningin kemur m.a. fram í aukinni umferð um Selasetur Íslands á Hvammstanga. Þetta segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti sveitastjórnar, í samtali við Morgunblaðið í fyrradag. „Við erum að sjá 80 prósentum fleiri ferðamenn núna í maí en í fyrra og það lítur út fyrir að sumarið verði gott fyrir ferðaþjónustuaðila hér á svæðinu," segir Unnur.
Morgunblaðið ræddi við Unni Valborgu sem segir að skáldsaga hinnar áströlsku Hönnuh Kent, Náðarstund, hafi eitthvað með þessa gífurlegu fjölgun ferðamanna að gera. Einnig segir hún nátturu Húnavatnssýslu heilla marga, þó fyrri kosturinn sé sennilegri ástæða fjölgunarinnar. „Ég get ekkert fullyrt um orsök fjölgunarinnar en ég veit að hingað hafa komið ferðamenn sérstaklega í þeim tilgangi að kynna sér söguslóðir Náðarstundar eftir Kent," segir Unnur í samtali við Morgunblaðið.
Hannah Kent var 17 ára skiptinemi í Skagafirði þegar hún heyrði söguna um Agnesi Magnúsdóttur, sem var tekin af lífi í Vatnsdalshólum í Húnavatnssýslu 12. janúar 1830. Það var síðasta aftakan á Íslandi.