Missti allt sitt í eldi
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
18.05.2015
kl. 10.10
Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Breiðabólstað í Vestur-Húnavatnssýslu um hádegi í gær. Erfiðlega gekk að slökkva eldinn en brunavarnir Vestur-Húnavatnssýslu og Slökkviliðið á Blönduósi voru kölluð á vettvang.
Þegar lið Brunavarna Húnaþings vestra kom á staðinn var mestur eldur á efri hæð hússins, en þar sem norðanhvassviðri var varð húsið fljótt alelda. Engin slys urðu á fólki en húsið er brunnið til kaldra kola og ábúandinn missti allt sitt innbú í eldinum.
Breiðabólsstaður er forn og kunnur kirkjustaður. Skammt er milli kirkju og bæjar en ekki var þó hætta á að eldurinn bærist í kirkjuna.