Myndir frá Íslandsmóti barna

Myndir af Íslandsmóti barna, unglinga og ungmenna eru komnar inn á vef hestamannafélagsins Þyts, www.123.is/thytur. Þeir sem vilja fá mynd senda í tölvupósti í fullri upplausn þá getur það sent póst á bessast@simnet.is. OPNA íþróttamót Þyts um helgina.

Mótsstjórn Íslandsmótsins vill þakka mótsgestum fyrir frábæra daga.

Hestamannafélagið Þytur heldur opið íþróttamót laugardaginn 21.ágúst og birtist hér dagskrá með fyrirvara um breytingar.

Laugardagur 21.ágúst

  • Fimmgangur 1.flokkur
  •  
  • Fjórgangur ungmenni
  •  
  • Fjórgangur unglingar
  •  
  • Börn fjórgangur
  •  
  • 1. flokkur fjórgangur
  •  
  • Matarhlé
  •  
  • 2. flokkur fjórgangur
  •  
  • Tölt T2
  •  
  • Börn Tölt
  •  
  • Unglingar Tölt
  •  
  • Ungmenni Tölt
  •  
  • KAFFIHLÉ
  •  
  • 1.flokkur Tölt
  •  
  • 2.flokkur Tölt
  •  
  • Gæðingaskeið
  •  
  • (Á sunnudeginum þá verður 100 metra skeið)

 

Tekið verður á móti skráningum þriðjudaginn 17. ágúst og miðvikudaginn 18. ágúst, hægt er að senda mail á hjordisoo@gmail.com  eða hringja í síma 822-3848(Hjördís Ósk). Ekki verður tekið á móti skráningum eftir miðvikudaginn 18.ágúst!

Skráningargjöld verða 2000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1500 fyrir aðra skráningu og 1000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.

Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa, keppnisgrein og uppá hvaða hönd skal ríða.

Athugið að hægt er að greiða skráningargjöld beint inná reikning 1105-26-1081 kt: 550180-0499

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir