Norðvestlendingar í Ísland Got Talent

Húnvetningurinn Elvar Kristinn Gapunay og dansfélaginn hans, Sara Lind Guðnadóttir, komust ekki áfram í Ísland Got Talent sem fór fram á Stöð 2 í gærkvöldi. Undir lok þáttarins stóð valið á milli dansparsins unga eða tónlistarfólksins Arnars Loga Hákonarsonar og Agnesar Sólmundsdóttur frá Þingeyri.

Það var auðséð að dómararnir áttu erfitt með valið en það voru þau Arnar Logi og Agnes sem voru kosin til að komast áfram í úrslit.

Þess má geta að Arnar Logi og Agnes eru tengd hingað á Norðvesturland en foreldrar þeirra beggja voru í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Agnes er dóttir Sólmundar Friðrikssonar sem plokkaði bassann hjá Geirmundi Valtýssyni um tíma og er fyrrverandi starfsmaður Feykis. Móðir Arnars Loga, Jónína Hrönn Símonardóttir, er Skagfirðingur frá Ketu í Hegranesi.

Hér má sjá tónlistaratriði Arnars Loga og Agnesar.

 

Fleiri fréttir