Nýbygging Árskóla vígð í gær
feykir.is
Skagafjörður
15.11.2013
kl. 13.16
Vígsla nýbyggingar Árskóla á Sauðárkróki fór fram í gær við upphaf danssýningar nemenda skólans. Einnig stóð yfir afmælishátíð skólans en 15 ár eru síðan Árskóli tók til starfa og nemendur 10. bekkjar háðu árlegt dansmaraþon sitt. Í tilefni tímamótanna afhenti Ólafur Sigmarsson, f.h. Sáttmála til sóknar, skólanum fjórar milljónr króna til spjaldtölvuvæðingar skólans. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá brot af stemningu dagsins.
http://www.youtube.com/watch?v=7JhkNYk5AAc