Nýr sálfræðingur hjá Húnaþingi vestra
Í tilkynningu á heimasíðu Húnaþings vestra kemur fram að Dr. Björg Bjarnadóttir sálfræðingur sé tekin til starfa hjá sveitarfélaginu. Mun starf hennar vera tvískipt, annars vegar til stuðnings skólunum og hins vegar almenn störf á fjölskyldusviði.
Mun Björg að mestu hafa viðveru á Laugarbakka fyrir hádegi en í ráðhúsi eftir hádegi.
Í sömu tilkynningu kemur fram að Henrike Wappler félagsráðgjafi hjá sveitarfélaginu sé komin í hálft starf og starfi í ráðhúsi fyrir hádegi þar sem hún sér alfarið um þjónustu við íbúa eldri en 55 ára, ásamt húsaleigubótum.