Of kostnaðarsamt að þiggja gamla íbúðarhúsið að Hraunum
feykir.is
Skagafjörður
06.05.2014
kl. 11.04
Atvinnu-, menningar-, og kynningarnefnd Svf. Skagafjarðar telur ekki rétt að þiggja gamla íbúðarhúsið að Hraunum í Fljótum þar sem verulega kostnaðarsamt væri að flytja og endurbyggja húsið á nýjum stað. Þetta kom fram á fundi nefndarinnar sem fór fram fyrir helgi.
„Með tilvísun í forstöðumann Byggðasafns Skagfirðinga telur nefndin ekki rétt að þiggja húsið til varðveislu þar sem sveitarfélagið á nú þegar hús sömu gerðar, þ.e. Áshúsið í Glaumbæ, enda væri verulega kostnaðarsamt að flytja og endurbyggja húsið á nýjum stað,“ segir í fundargerð nefndarinnar.