Örvar SK-2 seldur úr landi

Frystitogarinn Örvar SK-2  verður seldur úr landi. Viðunandi kauptilboð barst  í frystitogarann Örvar SK-2 , sem gerður er út frá Sauðárkróki og frágangur samninga stendur nú yfir, en stefnt að því að skipið verði afhent nýjum eigendum í febrúarmánuði n.k. Frá þessu er sagt í fréttatilkynningu frá Fisk.

Óhjákvæmilega fylgja sölu á skipi uppsagnir sjómanna, en 17 manns eru í áhöfn og að teknu tilliti til skiptakerfis er  30   manns  sagt  upp, en uppsagnarfrestur er frá einum  og upp í sex mánuði.

Stefna FISK er að draga úr vægi frystingar og vinnslu úti á sjó, en efla í staðinn vinnslu í landi, sem býður upp á fjölbreyttari framleiðslu og betri nýtingu alls hráefnis. Undirbúningur að þessari breytingu er þegar hafinn  m.a. með byggingu þurrkverksmiðju á Sauðárkróki.

Jafnframt á FISK dótturfyrirtæki, sem sérhæfir sig í rannsóknum og þróun er snúa að eftirliti og eflingu gæða á lokaafurðum FISK-Seafood og að staðla framleiðsluna sem mest. Einnig eru  í gangi rannsóknir og  þróun til eflingar á hámarks nýtingu hráefnis FISK-Seafood m.a með aukinni verðmætasköpun úr hliðarhráefni og bættrar umgengni við náttúruauðlindir.

Þrír starfsmenn hafa verið ráðnir til þessa rannsókna- og þróunarfyrirtækis á þessu ári, sem allir hafa mismunandi bakgrunn hvað menntun varðar. Einn er næringarfræðingur og doktor á því sviði, annar er efnaverkfræðingur og sá þriðji er að klára líftækninám við Háskóla.

Slík stefnu-og áherslubreyting í rekstri FISK-Seafood ehf. kallar á miklar fjárfestingar og endurnýjun framleiðslu tækja til lands og sjávar. Áhersla á rannsóknir og þróun í fyrirækinu  útheimtir þolinmæði og langtímahugsun og að sjálfsögðu mikið fjármagn bæði hvað varðar tækjabúnað og þjálfun og menntun starfsfólks.

FISK-Seafood  ehf. telur að mikil tækifæri séu til staðar í þróun og vinnslu sjávarafurða og mikill styrkur til framtíðar að hafa aðgang að svokölluðu hliðarhráefni til aukinnar verðmætasköpunnar. Vaxandi skilningur almennings og stjórnvalda  er á mikilvægi þess að fyrirtæki eins og FISK-Seafood ehf. fái að vaxa og dafna á eðlilegan hátt og ekki síst fyrir hinar dreifðu byggðir.

Þó svo að starfsmönnum FISK, geti fækkað tímabundið við slíka áherslubreytingu er ljóst að til lengdar muni þeim fjölga með frekari úrvinnslu og bættri nýtingu þess hráefnis  sem að landi kemur. Síðast en ekki síst mun fjölbreyttni starfa hjá fyrirtækinu aukast til mikilla muna frá því sem nú er.

Fleiri fréttir