Óska eftir stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu grunnskólakennara

Félag grunnskólakennara hefur boðað vinnustöðvun í grunnskólum landsins á morgun, miðvikudaginn 21. maí. Félagsmenn FG í Árskóla óska eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður sendi frá sér stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu félagsmanna FG til samninganefndar sveitarfélaganna. Þau vilja beina eftirfarandi orðum til sveitarstjórnarmanna, sveitarstjóra og sviðsstjóra.

„Vegna yfirvofandi vinnustöðvunar FG á morgun óskum við eftir því að Sveitarfélagið Skagafjörður sendi frá sér stuðningsyfirlýsingu við kjarabaráttu félagsmanna FG til samninganefndar sveitarfélaganna. Ef af vinnustöðvun verður þá munu félagsmenn fjölmenna við Ráðhúsið kl. 10:00 í fyrramálið og óska eftir viðbrögðum,“ segir í fréttatilkynningu.

Beðnir um að fylgjast með fréttum

Foreldrar grunnskólabarna eru beðnir um að fylgjast með fréttum í kvöld og í fyrramálið þar sem skólahald fellur niður ef ekki tekst að semja. Þess má geta að starfsemi Árvistar verður óbreytt.

 

Fleiri fréttir