Óska eftir tilnefningum vegna samfélagsviðurkenningar

Fjölskyldusvið Húnaþings vestra hefur óskað eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins um þá aðila sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín í þágu samfélagsins. Á vef Húnaþings vestra segir að allir koma til greina, jafnt einstaklingar, fyrirtæki sem og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum fyrirmynd.

Tilnefningar má senda á bréfleiðis til fjölskyldusviðs, Ráðhúsinu  Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga, eða á netfangið esther@hunathing.is.

Skilafrestur er til miðnættis 15. janúar 2015.

Fleiri fréttir