Pétur Jóhann óheflaður á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
01.04.2015
kl. 08.42
Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon verður með uppistandsýninguna sína, Pétur Jóhann óheflaður, á Hvammstanga á skírdag, 2. apríl. Auk þess að vera þekktur uppistandari og grínisti hefur Péutr Jóhann unnið marga sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.
Sýningin stendur í tvær klukkustundir og er hún samin af Pétri sjálfum. Síðustu mánuði hefur hann flakkað um landið og fyllt hvert húsið á fætur öðru meðan annars Hótel Blönduós. Pétur var á Blönduósi í lok febrúar og seldust miðar á sýninguna upp í forsölu tveimur dögum fyrir hana, eins og segir í frétt á vefnum huni.is.