Pilsaþytur fagnar formlegri stofnun - Samkoma í Melsgili með dansi og harmóníkuspili

Ásta Ólöf Jónsdóttir, ein af stjórnarkonum Pilsaþyts. Mynd FE
Ásta Ólöf Jónsdóttir, ein af stjórnarkonum Pilsaþyts. Mynd FE

Þeir sem lagt hafa leið sína á opinberar samkomur í Skagafirði undanfarin ár hafa vafalaust, margir hverjir, tekið eftir og trúlega hrifist af, nokkrum fallega prúðbúnum konum sem spranga um hnarreistar á litríkum þjóðbúningum. Trúlega eiga flestar þessara kvenna það sameiginlegt að vera félagar í litlum hópi sem kallar sig Pilsaþyt en sá félagsskapur lét verða af því á dögunum að stofna formlegt félag um áhugamál sitt og hyggst hann standa fyrir uppákomu í Melsgili í komandi Sæluviku. Feykir hitti einn af forsprökkum þessa félagsskapar, Ástu Ólöfu Jónsdóttur, að máli á dögunum og fékk hana til að segja okkur örlítið frá þessum skemmtilega hópi. 

Gömul mynd af ungri stúlku í upphlut. Ásta fór fyrst í upphlut á árshátíð MA þann 1. des. 1979 og ákvað þá að hún ætlaði að eignast þjóðbúning. Mynd úr einkasafni.

„Pilsaþytur kom upphaflega til þannig að við vorum að spjalla saman í prjónakaffi, það var árið 2013, og ákváðum að fara uppábúnar á setningu Sæluviku. Það kom nefnilega upp að það voru ansi margar konur þarna í hópnum sem áttu búninga en voru ekkert mjög duglegar að nota þá.  Svo við mættum uppábúnar við setningu Sæluviku 2013, milli 10 og 15 konur, og fórum svo upp á dvalarheimili aldraðra og löbbuðum þar um gangana, Nafnið er til komið eftir þá ferð því þegar þetta var svo að verða félagsskapur þá var mér mjög minnisstætt að þegar við sviptumst þarna eftir göngunum þá varð til ákveðið hljóð þegar þaut í pilsunum,“ segir Ásta aðspurð um upphaf félagsskaparins sem síðan hefur undið upp á sig og staðið bæði að námskeiðshaldi, sýningum og fleiru.

Sigríður Ingólfsdóttir og Ásta, uppáklæddar í grenjandi rigningu við setningu Landsmóts UMFÍ 2018. Mynd úr einkasafni.

Markmiðið að vera sýnilegar

„Svo um haustið,“ heldur Ásta áfram, „þá datt mér í hug að fara á námskeið í balderingu suður í Hafnarfirði og fékk þá þessa brjálæðislegu hugmynd að fá þá sem rekur þjóðbúningastofuna Annríki í Hafnarfirði, hana Hildi, til að koma á Sæluviku 2014 með kynningu á starfinu og þjóðbúningum. Ég sótti um styrk hjá Menningarsjóði KS, sem ég og fékk, og þau hjónin, Hildur og Ási, komu í Sæluviku 2014 með kynninguna. Ég miða eiginlega við að það sé upphafið, að þá hafi þessi félagsskapur orðið til, þarna haustið 2013 og í ársbyrjun 2014. Við höfum svo mætt uppábúnar á setningu Sæluviku á hverju ári eftir þetta, mismargar, enda er þetta mjög frjáls félagsskapur og engar kvaðir, ef þú nennir þá mætir þú, annars ekki. Markmið Pilsaþyts hefur fyrst og fremst verið að auka notkun þjóðbúningsins og halda honum svolítið á lofti, að finna okkur tækifæri til að nota hann og reyna að vera sýnilegar þannig að fleiri færu að þora að nota hann því að þetta eru alltof mikil verðmæti til að láta liggja inni í skáp, við getum fundið okkur eitthvert ódýrara skápaskraut,“ segir Ásta sposk.

„Til að byrja með stóðum við aðallega fyrir því að stofna  hóp sem fór að sauma sér faldbúninga, sá hópur útskrifaðist í fyrra, í Sæluviku, uppi á Hólum. Það var ákaflega skemmtilegur dagur nema það var afskaplega leiðinlegt veður, veðurguðirnir voru okkur ekki hliðholllir með það. Í hitteðfyrra vorum við með sýningu niðri í Húsi frítímans, þjóðbúningasýningu, þannig að við höfum oft verið með einhverjar svona uppákomur, frekar einfaldar náttúrulega og helst eitthvað sem kostar ekki mikið því að styrkirnir sem við höfum fengið hafa nú gjarnan farið í að niðurgreiða ferðakostnað vegna námskeiða. Okkur tókst til dæmis með þennan faldbúningahóp, sem var á fjórða ár að vinna við búningana sína, að greiða niður allan ferðakostnað kennara og húsaleigu hér, þ.e. allan aukakostnað sem fellur til vegna þess að vera úti á landi þannig að þær sátu alveg við sama borð og fólk í Reykjavík.“  Samhliða þessum námskeiðum faldbúningshópsins stóðum við svo fyrir nokkrum námskeiðum í upphluts- og peysufatasaumi.  

Ef ég finn ekki tilefnið þá bý ég það til

Ásta Ólöf Jónsdóttir, Finnur Alexander Lazar Sorinsson og Sigurjóna Sóldís Friðriksdóttir á sýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í maí 2018. Mynd úr einkasafni.

Ásta segir að konurnar í Pilsaþyt hafi vissulega verið misjafnlega virkar við að klæðast búningnum en sjálf hafi hún verið dugleg við það og sem dæmi fór hún 23 sinnum í íslenskan búning á síðasta ári. „Ég tók upp á því fyrir tveimur til þremur árum að skrá niður tilefnin. Ef ég finn ekki tilefnið þá bý ég mér það til. Við höfum t.d. haft það fyrir sið svona einu sinni til tvisvar á ári að fara og fá okkur kaffibolla úti á Kaffi Krók, uppábúnar.  Og þegar fólk kvartar undan því að það sé svo mikið mál að fara í þetta þá segi ég „nei, það er ekkert mál að fara í búninginn, það er miklu meira mál að fara úr honum,“ því það þarf að ganga um hann af mikilli virðingu, þú hendir honum ekki bara á stól þegar þú ferð úr honum. Það þarf að ganga vel frá skartinu og bolnum þannig að það falli minna á. Það er ekkert mál að fara í þetta, ég setti til dæmis persónulegt met núna á þriðjudaginn, ég held að ég hafi verið tíu mínútur, ég var að vísu búin að undirbúa mig. Það er hægt að gera þetta á korteri, gott að hafa hálftíma. En þú þarft 20 mínútur til hálftíma til að klæða þig ef þú ert að fara eitthvað, þetta er ekkert öðruvísi þegar þú ert orðin vön og þegar þú ert búin að læra að gera þetta ein og hjálparlaust.“

Ásta segir að búningunum megi klæðast við nánast öll tækifæri. Hér er slakað á eftir sýningu á Prjónagleði á Blönduósi. Sigurjóna Sóldís Friðriksdóttir (blár búningur) og Ásta Ólöf Jónsdóttir (rauður búningur). Mynd úr einkasafni.
Sigríður Sigurðardóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga, kvödd í júní 2018. Rósa Róarsdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Sirrý, Selma Hjörvarsdóttir, Hulda Þórsdóttir, Ásta Ólöf Jónsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir og efst er Guðbörg Elsa Helgadóttir. Mynd ur einkasafni.

Ásta segist nota íslenskan búning við öll þau tækifæri sem henni detti í hug, við skírnir, fermingar, brúðkaup, jarðarfarir og svo náttúrulega athafnir eins og setningu Sæluviku og þess háttar. Einnnig hafi hópurinn alltaf verið í góðu samstarfi við Byggðasafnið og haft það fyrir sið að heimsækja Glaumbæ á kvenréttindadaginn, 19. júní, og á síðasta ári þegar Sigríður Sigurðardóttir lét af störfum sem safnstjóri fór hópurinn prúðbúinn og kvaddi hana.  

Eins og áður segir var Pilsaþytur óformlegt félag þar til nýlega. „Við stofnuðum hóp á Facebook, ég held að félagarnir þar séu um 40 en það eru tæplega 20 sem eru í þessu nýja formlega félagi,“ segir Ásta.  Það var svo hinn 10. mars sem félagið Pilsaþytur í Skagafirði var stofnað formlega og var það gert í baðstofunni í Glaumbæ sem auðvitað var vel við hæfi. Ásta segir að í sjálfu sér hafi formlegheitin ekki miklar breytingar í för með sér fyrir starfsemi hópsins, heldur sé ástæðan fyrst og fremst sú að þær séu alltaf að sýsla eitthvað með peninga og þá sé auðvitað mikið betra að hafa sérstakan bankareikning fyrir félagið á eigin kennitölu. Við vorum tíu sem mættum á stofnfundinn, átta 

Frá stofnfundi Pilsaþyts 10. mars 2019.  Efst er Guðrún Ingólfsdóttir, næst koma Ásta Ólöf Jónsdóttir og Guðbjörg Elsa Helgadóttir, þá Jóhanna Birgisdóttir og Birna Jónsdóttir, Hulda Þórsdóttir og Jóhanna Björnsdóttir og neðst er Rósa Róarsdóttir. Mynd úr einkasafni.uppáklæddar, en vorum 17 sem vorum búnar að melda okkur sem formlega stofnfélaga. Við erum því 17 sem erum félagar í dag en  kannski svona tíu sem erum virkastar. Stjórnarkonur eru Ásta Ólöf Jónsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir og Sigríður Ingólfsdóttir. Til vara er  Jóhanna Birgisdóttir.“  

En fylgja félagsaðildinni einhverjar kvaðir?
„Í sjálfu sér ekki. Við ákváðum að hafa félagsgjald, 1.000 krónur fyrsta árið, en ég hef alltaf lagt mikla áherslu á að þetta á ekki að vera kvöð. Auðvitað er einhver kvöð fyrir þá sem eru í stjórn og ef um einhverjar uppákomur er að ræða þá fylgir því auðvitað einhver skipulagningarvinna. Og þó það séu ekki allir sem eru í Facebookhópnum formlegir aðilar þá koma bara þeir sem það vilja á uppákomur, hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki. Hins vegar getur vel verið að við verðum einhvern tíma með sér uppákomur, einungis fyrir félagsmenn, en það er bara eitthvað sem við eigum eftir að þróa.“

Frá stofnfundi Pilsaþyts 10. mars 2019. Mynd úr einkasafni.

Sýning og ball á Sæluviku

Nú ætlið þið að standa fyrir viðburði í Sæluviku, í hverju er hann fólginn?
Við ætlum að vera með samkomu í Melsgili, fimmtudagskvöldið 2. maí. Þangað kemur dansflokkur frá Akureyri, dansfélagið Vefarinn, og þau ætla að sýna okkur þjóðdansa. Sýningin mun taka um 50 mínútur og á eftir verður boðið upp á kaffi og kleinur.  Svo vorum við að  hugsa um að efna til smá harmóníkuballs á eftir. Allir eru velkomnir og verður selt inn gegn mjög hóflegu gjaldi.

Aðspurð um hvað sé fleira framundan hjá félaginu segir Ásta að líklega séu þær hættar námskeiðahaldi í bili. „En Helga Sigurbjörnsdóttir er enn að kenna og hún á þátt í mörgum búningum hér á svæðinu. Áhuginn á þjóðbúningum hefur aukist, mér finnst það. Og hann er náttúrulega töluvert mikill hér, kannski vegna þess að við erum þetta sýnilegar. Ég lendi miklu frekar í því ef ég er fyrir sunnan á samkomum að ég sé sú eina sem mæti í svona búningi.

Þjóðbúningarnir tengjast auðvitað arfleifðinni og partur af því sem við erum að gera er að tengjast henni og skila til komandi kynslóða. Margar þessar ungu

Sigríður Ingólfsdóttir og Geir Eyjólfsson á sýningu í íþróttahúsinu á Sauðárkróki í maí 2018. Mynd úr einkasafni.konur bera þessa búninga með miklum glæsibrag. En svo er auðvitað þetta, mér er alveg sama þó ég sé eins og troðin tunna þegar ég er komin í búninginn, það eru sumar sem geta ekki farið í hann því að þeim finnst þær verða of feitar í honum. Það er allt í lagi mín vegna, þær ráða því alveg, en ég verð ekkert mjórri og ekki feitari við að fara í búninginn, ég er bara eins og ég er og mér finnst gaman að fara í búninginn og þó að ég sjái fullt af konum sem eru miklu glæsilegri en ég þá breytir það því ekki að ég megi ekki nota minn búning. Mér finnst við ekkert eiga að vera með einhvern hauspoka þó það séu einhverjar aðrar flottari. Ég get alveg verið flottari í einhverju öðru en það er bara ekki eins áberandi,“ segir Ásta og glottir lítillega.

Samkoma Pilsaþyts í Melsgili verður auglýst í Sæluvikudagskránni og hvetur Ásta fólk til að líta þar við og horfa á sýninguna, þiggja kaffi og meðlæti og taka svo sporið við undirleik dunandi harmóníkuspils. „Við ætlum ekki að selja dýrt inn, 1.500 kall og svo verður afsláttur ef þú mætir í þjóðbúningi eða hátíðarbúningi, þá færðu þetta á 1.000 kall.  Þangað verða allir velkomnir, alveg óháð því hvort fólk klæðist þjóðbúningi eða ekki,“ segir Ásta að lokum. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir