Rjúpnaveiði í Víðidal
Rjúpnaveiði í löndum Syðra-Kolugils, Hrappsstaða, Gafls og Lækjarkots i Víðidal verður takmörkuð i haust vegna mikils ágangs undanfarin haust, og öryggis veiðimanna.
Í nýjasta eintaki Sjónaukans segir að veiðileyfi verði eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli í síma 451 25 66. Þar verður líka tilboð á gistingu á rjúpnaveiðitímanum. Netfangið er daeli@daeli.is.
Verð á veiðileyfum verður átta þúsund krónur á dag fyrstu helgina, en síðan sjö þúsund krónur á dag. Afsláttur verður veittur ef keypt eru veiðileyfi fyrir fleiri en einn dag um sömu helgi.