Sæluviku-sunnudagur
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
04.05.2014
kl. 07.00
Í dag er opinn dagur í Byggðasafni Skagfirðinga þar sem hægt er að heimsækja Glaumbæjarsafn og Áskaffi. Fiskisæla er fiskréttahlaðborð í Ljósheimum til styrktar góðu málefni og stendur það frá 12-14.
Myndlistarsýningar eru á sínum stað og Króksbíó sýnir hina bráðsmellnu teiknimynd Ævintýri Peabodys og Servents. Spiluð verður félagsvist í Ljósheimum kl. 20 og á sama tíma sýnir Leikfélagið Rjúkandi ráð.
Dagskrá Sæluviku er að finna hér.