Saga kvennabandsins komin út

Saga Kvennabandsins í Vestur-Húnavatnssýslu í 90 ár kom út í júní síðastliðnum og var afhent við hátíðlega athöfn í kapellu sjúkrahússins á Hvammstanga í lok júní. Frá þessu er sagt á vef Norðanáttar.

Jónína Ögn Jóhannesdóttir, formaður Kvennabandsins, sagði útgáfu bókarinnar vera tilraun til að heiðra minningu þeirra kvenna sem lögðu á sig gríðarlega vinnu til að koma áhugamálum sínum í framkvæmd. Frá þessu er sagt á vef Norðanáttar.

Gunnhildur Hrólfsdóttir, höfundur bókarinnar, nýtti fjölmargar heimildir við skrifin, s.s. fundagerðabækur Kvennabandsins, héraðs- og landsmálablöð, bækur og munnlegar heimildir. Í bókinni kennir ýmissa grasa og er m.a. farið yfir sögu kvennabandsins, umræður og ákvarðanir, stjórn þess, nefndir, fjárhag, fjáraflanir, gjafir, styrki og samstarf.

Kvennabandið hefur látið margt gott af sér leiða í gegnum árin og hefur m.a. fært heimilisfólki dvalarheimilis jólagjafir, átt stóran þátt í að aðalbygging Sjúkrahúss Hvammstanga var reist, lagt til minnismerki við ýmis tilefni, gefið gjafir og styrkt einstaklinga og félög.

Fleiri fréttir