Sagnadagur í Húnaþingi vestra á laugardag

Ennþá er hægt að skrá sig á sagnanámskeiðið nk. laugardaginn, 12. apríl, í Reykjaskóla í Hrútafirði. Námskeiðið hefst kl. 13 og stendur til kl. 18.

Kennarar á námskeiði:

Ingi Hans Jónsson er einn af þekktari sagnamönnum landsins. Hann byrjaði ungur að herma eftir skrautlegum karakterum í heimabænum, Grundarfirði og hefur æ síðan skemmt fólki með sögum. Ingi Hans byggir nú upp Sögustofu í Grundarfirði, vinnustofu sagnameistarans þar sem tekið verður á móti fólki og boðið upp á allskonar sögur.

Sigurborg Kr. Hannesdóttir hefur fengist við sagnalist síðustu árin og sagt sögur og sungið hér heima og erlendis. Hún hefur nýtt sögur í starfi sínu sem ráðgjafi og einnig þróað námskeiðið „Til fundar við formæður“, þar sem konur vinna með sögur sinna formæðra.

Um kvöldið (kl. 19) gefst svo tækifæri til að snæða Sagnakvöldverð (þríréttaðan) og  hlusta á skemmtilegar sögur á Sveitasetrinu Gauksmýri – ÖLLUM OPIÐ.

Kl. 20:00  Sagnaskemmtan hefst - þekktir og óþekktir sagnamenn láta sögurnar flakka.

Aðalsögumaður kvöldsins er Einar Kárason, rithöfundur og sagnameistari.

Skráning í síma 898-5154 eða á gudrun@ssnv.is. Nánar um Sagnadaginn á www.grettistak.is.

Fleiri fréttir