Samfélagsviðurkenning í Húnaþingi vestra
Fjölskyldusvið Húnaþings vestra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarféalgsins um þá aðila sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín í þágu samfélagsins, að því er fram kemur á heimasíðu sveitarfélagsins.
Allir koma til greina, jafnt einstaklingar sem og félagasamtök, sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu látið gott af sér leiða og verið öðrum fyrirmynd. Tilnefningar má senda bréfleiðis til fjölskyldusviðs, Ráðhúsinu Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga eða á netfangið esther@hunating.is. Skilafrestur er til miðnættis 15. janúar 2015.