Samningur um dreifnám endurnýjaður

Í fundargerð sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 19. maí sl. segir að Sveitarstjórn fagni nýgerðum samningi vegna Dreifnáms í Húnaþingi vestra. „Dreifnámið er samfélaginu í Húnaþingi vestra afar mikilvægt. Með því er unga fólkinu gert kleift að vera lengur heima en annars með þeim fjárhagslega og félagslega ávinningi sem af því hlýst,“ segir í fundargerð.

Það fjárframlag sem ætlað er til dreifnámsins frá ríkinu stendur ekki straum af öllum kostnaði við rekstur þess. Á árinu 2015 styður sveitarfélagið Húnaþing vestra við starf dreifnámsins með fjárframlagi í kringum 6 milljónir króna auk þess að niðurgreiða hádegismat til nemenda.

„Sveitarfélagið hefur stutt starf dreifnámsins með líkum hætti frá upphafi og kostaði auk þess standsetningu húsnæðis dreifnámsins og kaup á nauðsynlegum búnaði ásamt fyrirtækjum og félagssamtökum í Húnaþingi vestra. Einnig er vakin á því athygli að þó svo að samningurinn gildi til ársloka 2019 eru í honum ákvæði um lágmarksfjölda nemenda. Það er því afar mikilvægt að foreldrar í sveitarfélaginu hvetji börn sín til að sækja nám í dreifnáminu fyrstu ár framhaldsskólanámsins til að þjónustan haldi áfram að vera í boði fyrir ungmenni í Húnaþingi vestra,“ segir loks í fundargerð.

Fleiri fréttir