Samstarf um forvarnir gegn einelti í Skagafirði
Síðast liðinn sunnudag undirrituðu fulltrúar Vinaverkefnisins í Skagafirði og UMSS sáttmála gegn einelti í Skagafirði. Var hann undirritaður á atvinnu- og menningarlífssýningunni Skagafjörður 2014 – Lífsins gæði og gleði, af þeim Selmu Barðdal Reynisdóttur verkefnastjóra Vinaverkefnisins og Jóni Daníel Jónssyni formanni UMSS.
Kveikjan að verkefninu er sú að íþróttahreyfingin óskaði eftir samstarfi við Vinaverkefnið um að samræma forvarnir gegn einelti fyrir öll börn í Skagafirði. Í grunnskólum í Skagafirði er unnið eftir eineltisáætlun Olweusar og íþróttahreyfingin vinnur eftir áherslum ÍSÍ í forvörnum gegn einelti.
Ákveðið var að fara í þá vinnu að búa til samstarfsáætlun sem snýr m.a. að því að starfsfólk í íþróttageiranum fái reglubundna fræðslu um forvarnir og viðbrögð gegn einelti. Einnig á að skýra verkferla um samstarf á milli samstarfsaðila og útbúa viðbragðsáætlun til notkunar þegar grunur um einelti vaknar á meðal iðkenda.
Markmið samstarfsins er að börnum í Skagafirði líði vel í skóla- og íþróttastarfi, að allir taki virka afstöðu gegn einelti og að forvarnir og viðbrögð gegn einelti séu samræmd milli skóla og íþróttastarfs í Skagafirði.
Sáttmálinn er svohljóðandi:
Við leggjum ekki í einelti. Við komum fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur. Við tökum ábyrgð á hegðun okkar. Við aðstoðum þá sem verða fyrir einelti og segjum fullorðnum frá eineltinu. Við gætum þess að enginn sé skilinn útundan og að öllum líði vel í skóla- og íþróttastarfi.