Samþykkt að hækka ekki gjaldskrár

Á sveitarstjórnarfundi Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær var samþykkt tillaga um að hækka ekki gjaldskrár sem snúa að börnum og eldri borgurum, enda hafi árangur í hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins orðið verulegur á kjörtímabilinu og markmiðið að Skagafjörður verði áfram ákjósanlegur búsetukostur á landsvísu.

Á fudninum var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða.

Í ljósi viðsnúnings og jákvæðrar þróunar í rekstri sveitarfélagsins hefur meirihluti framsóknar og vinstri grænna í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar ákveðið að leggja til að ekki verði farið í gjaldskrárhækkanir fyrir árið 2014 er snúa aðallega að börnum, barnafólki og eldri borgurum. Lagt er til að eftirfarandi gjaldskrár verði ekki hækkaðar frá fyrra ári þrátt fyrir verðlagshækkanir:

Leikskólagjöld, skólamáltíðir í leik- og grunnskólum, skóladagvist, tónlistarnám, hljóðfæraleiga, aðgangseyrir í sundlaugar (áfram verður frítt í sund fyrir börn og eldri borgara með lögheimili i sveitarfélaginu), dagvist aldraðra, heimaþjónusta og tómstundastarf barna á vegum sveitarfélagsins.

Á kjörtímabilinu hefur verið ráðist í viðamiklar hagræðingaraðgerðir hjá sveitarfélaginu með samstilltu átaki sveitarstjórnar, starfsfólks sveitarfélagsins og íbúum þess. Sá árangur sem náðst hefur er grunnurinn að því að hægt er að fara í fyrrgreindar aðgerðir. Meirihluti framsóknar og vinstri grænna í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar telur að með þessum aðgerðum sé sveitarstjórn að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að stuðla að stöðugleika,  halda aftur af verðbólgu á komandi ári og að kaupmáttur íbúanna aukist í raun.

Með samþykkt tillögunnar verða gjöld og álögur á fjölskyldufólk og eldri borgara áfram með því lægsta sem gerist á landsvísu. Markmiðið er að tryggja að Skagafjörður sé og verði í fremstu röð sem ákjósanlegur búsetukostur.

Fleiri fréttir