Sauðfjárslátrun hafin á Hvammstanga
Sauðfjárslátrun hófst á Hvammstanga í fyrradag og verða fyrstu afurðir sumarsins fluttar út til Bandaríkjanna, að því er fram kemur í viðtali við Magnús Frey Jónsson, framkvæmdastjóra Sláturhúss KVH á Hvammstanga í Morgunblaðinu í dag.
Tæplega þúsund lömbum hefur verið slátrað og var meðalfallþungi þeirra 14,3 kg. Auk þess var slátrað um sextíu fullorðnum kindum og var meðalfallþungi þeirra 24 kg. Að sögn Magnúsar er nú verið að vinna kjötið sem hann reiknar með að verði flutt út með flugvélum í vikulokin. Magnús telur mikinn vöxt í útflutningi lambakjöts síðastliðin ár, eða um 30% árlega í útflutningi fyrirtækisins til Bandaríkjanna og var útflutningur í fyrra farinn að nálgast 200 tonn.