Sex framúrskarandi fyrirtæki á Norðurlandi vestra

Creditinfo hefur undanfarin ár birt lista sem sýnir hvaða íslensk fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins m.v. ýmsar lykiltölur og breytur. Eftir ítarlega greiningu fá  358 fyrirtæki þann styrk í mælingunum að verðskulda viðurkenninguna „Framúrskarandi fyrirtæki“. Sex þeirra eru á Norðurlandi vestra.

Á heimasíðu Creditinfo segir: -Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.

Þau fyrirtæki á Norðurlandi vestra sem fengu viðurkenninguna er: Fisk Seafood, Kaupfélag Skagfirðinga, Steinull, Tengill og Vörumiðlun á Sauðárkróki og Kaupfélag Vestur Húnvetninga á Hvammstanga.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

  •     að hafa skilað ársreikningum til RSK 2009 til 2011
  •     minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  •     að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  •     að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
  •     eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2009 - 2011
  •     að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2009 til 2011
  •     að vera með skráðan framkvæmdastjóra í hlutafélagaskrá
  •     að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

Sjá heimasíðu Creditinfo

Fleiri fréttir