Sjálfboðaliðar óskast í selatalningu

Selasetur Íslands stendur fyrir selatalningunni miklu í sjöunda sinn í ár. Talningin fer fram sunnudaginn 21. júlí næstkomandi. Talningin byggir á þátttöku sjálfboðaliða sem vilja taka þátt í rannsóknarstörfum, ásamt því að njóta nærveru sela og náttúru.

Þátttakan er skemmtileg upplifun fyrir alla náttúru- og dýraunnendur og þess má geta að í fyrra tóku 40 sjálfboðaliðarþátt. Áhuginn er mikill meðan heimamanna og ferðamanna. Markmiðið með talningunni er að afla þekkingar á fjölda sela sem dvelja á Vatnsnesi og Heggstaðarnesi í Húnaþingi vestra.

Talningin fara þannig fram að allir sjáanlegir selir eru taldir samtímis á stórstreymisfjöru á u.þ.b. 100 km strandlengju.

Skráning í talninguna fer fram á netfanginu selasetur@selasetur.is eða í síma 451-2345.

Fleiri fréttir