Sjávarsæla 2014
Sjómannadagurinn á Sauðárkróki verður haldinn með sama sniði og í fyrra á "gamla staðnum" laugardaginn 31. maí næstkomandi.
Í boði verður til dæmis kappróður, reipitog, flotgallasund, koddaslagur, sigling, fiskisúpa, grillaðar pylsur, candy floss, gasblöðrur, dorgveiðikeppni fyrir börnin, siglingar í boði siglingaklúbbs Drangeyjar, furðufiskasýning, hoppukastali og fleira nýtt.
Skráning er hafin í kappróðurinn og reipitogið á sjavarsaela@davidmar.net
Um kvöldið hefst svo Sjávarsælan í íþróttahúsinu á Sauðárkróki kl.20:00. Boðið verður upp á fjölbreytt hlaðborð með forréttum, aðalréttum og eftirréttum. Seinna um kvöldið verður svo ball með hinum vinsælu Hvannadalsbræðrum.
Frábær skemmtun sem er öllum opin. Miðaverð aðeins 7.000 kr. Fyrirtæki, félagahópar og einstaklingar eru hvattir til að mæta. Opnað verður á ballið um miðnætti, miðaverð aðeins á ballið er 2.000 kr.
Opið verður fyrir pantanir í síma 453-6454 (Ólafshús) á milli kl.17-19 frá mánudeginum 26. maí. Athugið 18 ára aldurstakmark.