Skagafjarðarbæklingur kominn út
feykir.is
Skagafjörður
13.05.2014
kl. 10.52
Út er kominn árlegur ferðabæklingur sem gefinn er út af Sveitarfélaginu Skagafirði og Félagi ferðaþjónustunnar í Skagafirði. Í honum er að finna upplýsingar um þá fjölbreyttu möguleika sem ferðaþjónusta í Skagafirði hefur upp á að bjóða.
Bæklingurinn er hannaður og prentaður af Nýprent ehf. á Sauðárkróki og kemur út í 10 þúsund eintökum. Bæklinginn prýðir fjöldi mynda sem teknar eru af þeim Óla Arnari Brynjarssyni, Pétri Inga Björnssyni, Hjalta Árnasyni og fleirum. Þessa dagana er verið að dreifa bæklingnum á upplýsingamiðstöðvar landsins og alla helstu viðkomustaði ferðamanna í Skagafirði.