Skagfirðingasveit gerir upp árið
Björgunarsveitin Skagfirðingasveit hefur gert upp árið á heimasíðu sinni enda árið 2013 annasamt. Á gamlársdag fyrir ári síðan var vont veður og menn í útköllum fram eftir degi og þess vegna var flugeldasýningu og brennu frestað og hóf Skagfirðingasveit því árið með bombum, eldi og látum. Tvær stórar aðgerðir voru um veturinn og nokkur minniháttar útköll.
Á bjargari.is segir að um vorið hafi sex námskeið verið haldin í Sveinsbúð: Fyrstahjálp 1 og 2, leitartækni, snjóflóð 1, vélsleðamaður 1 og 2 en sumarið byrjaði með stóru leitarútkalli og hálendisgæslu. Í hálendisgæsluna fór sjö manna lið úr Skagfirðingasveit ásamt þremur úr Flugbjörgunarsveitinni í Varmahlíð á Fjallabakssvæði, samstarfið var skemmtilegt og vikan mjög lærdómsrík.
Á haustdögum byrjaði hefðbundin dagskrá hjá Skagfirðingasveit og með haustlægðunum komu einnig aðstoðarbeiðnir frá Rarik þar sem aðstoða þurfti við að draga snjó og klaka af raflínum.
Í desember hafa björgunarsveitarmenn í nógu að snúast en á Þorláksmessu er hin árlega skötuveisla í Sveinsbúð og var hún ákaflega vel sótt í ár og mikil ánægja með hana. Á aðfangadag keyra björgunarsveitarmenn og aðstoða jólasveina við að gleðja börn með gjöfum og heimsóknum en aðaltekjulind björgunarsveitarinnar er flugeldasalan og þarfnast hún að sjálfsögðu undirbúnings eins og annað. Björgunarsveitin slær svo botninn úr árinu með flugeldasýningu og brennu á gamlárskvöld.
Sjá nánar HÉR