Skagfirskar skemmtisögur 3 – enn meira fjör!

Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út Skagfirskar skemmtisögur 3 – enn meira fjör! í samantekt Björns Jóhanns Björnssonar, blaðamans og Skagfirðings. Eins og titillinn ber með sér er þetta þriðja bindið með gamansögum af Skagfirðingum. Fyrri bækur hafa slegið í gegn og farið á metsölulista bókaverslana. Viðtökur hafa ekki aðeins verið góðar í Skagafirði heldur um allt land. Nú koma um 250 sögur til viðbótar og alls eru sögurnar því orðnar um 700 talsins í þessum þremur bindum.

Nú koma enn fleiri sögur af kaupmanninum Bjarna Har á Króknum, sem og héraðshöfðingjunum Halla í Enni, Friðriki á Svaðastöðum, Dúdda á Skörðugili, Bjarna Marons og Pálma Rögnvalds og hinum síkátu Álftagerðisbræðrum og nágrönnum þeirra. Óborganlegar gamansögur eru einnig af Jóhanni í Kúskerpi, Jóni Eiríkssyni Drangeyjarjarli, Birni gamla í Bæ, Ragga Sót og afa hans, og fyndnum Fljótamönnum eru gerð sérstök skil. Einnig er komið við á Króknum, Hofsósi og í Óslandshlíð, Viðvíkursveit, Hjaltadal, Blönduhlíð, Seyluhreppi og Staðarhreppi. Þá koma við sögu þjóðkunnir einstaklingar sem orðið hafa á vegi Skagfirðinga með einum eða öðrum hætti, m.a. nóbelskáldið Halldór Laxness.

Í bókinni er sérstakur kafli helgaður Ýtu-Kela, sem Norðlendingar muna margir vel eftir, en skrásetjari komst yfir ómetanlegar upptökur með Kela sem var stórskemmtilegur sögumaður og þjóðsagnapersóna í lifanda lífi. Sagðar eru sögur af samferðamönnum Kela í Skagafirði og Þingeyjarsýslum.

Skagfirskar skemmtisögur 3 fást í bókaverslunum og stórmörkuðum víða um land. Skopteikning á bókarkápu er eftir Andrés Andrésson. Leiðbeinandi verð bókarinnar er hið sama og áður, 2.980 kr.

Fleiri fréttir