Skokkhópurinn skundar af stað
Æfingar hins svokallaða skokkhóps á Sauðárkróki eru nú að hefjast. Vakin skal athygli á því að hlaup eru ekki skilyrði fyrir þátttöku, því hægt er að ganga, skokka, hjóla, hafa með sér barnakerrur og börn, í bakpoka, á hjóli eða gangandi. Þetta er því kjörin fjölskyldusamvera og ávallt eru fundnar leiðir og æfingar við hæfi hvers og eins.
Æft verður mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 17:30-18:30 en á laugardögum klukkan 10. Verð fyrir þátttöku allt sumarið er kl. 15.000 og veittur er fjölskylduafsláttur. Af þátttökugjaldi renna ávallt 1.000 krónur til góðs málefnis.
Á laugardögum er gjarnan boðið upp á lengri ferðir, t.d. fjallaferðir. Þá er boðið upp á púl og teygjur eftir hverja æfingu, eftir því sem hver og einn ræður við. Hópurinn hittist hjá sundlauginni og jafnan er lagt upp þaðan. Lögð er áhersla á fjör og létta stemningu.
Sem fyrr er það Árni Stefánsson sem heldur utan um hópinn og bíður hann alla velkomna að koma og prófa. Ávallt er farið varlega af stað með byrjendur og æfingin sniðin að þörfum hvers og eins. Árni gefur nánari upplýsingar í síma 864 3959.
„Hittumst hjá sundlauginni, hjólandi, gangandi, skokkandi,“ segir í tilkynningu frá hópnum.